Um okkur
Orðalist er í eigu bræðranna Aðalsteins og Sölva Jónssona. Með Orðalist getur þú búið til fallegt og persónulegt plakat, í krossgátustíl, á einfaldan hátt og fengið það sent heim að dyrum, tilbúið í ramma.

Saga
Þetta byrjaði allt sem gæluverkefni og fikt og átti aldrei að verða neitt meira en það.
Hugmyndin að Orðalist kviknaði þegar Aðalsteinn, stofnandi og annar eigandi, var í grunnnámi í tölvunarfræði. Hann velti því oft fyrir sér hvernig hann gæti nýtt námið, ekki einungis til að standast prófin heldur líka til að búa til eitthvað nytsamlegt og skemmtilegt. Hann smíðaði m.a. hlaupaforrit, greiningartól fyrir fótboltaþjálfara og forrit sem raðaði orðum saman í krossgátustíl.
Mesta athygli fékk orðaforritið og var Aðalsteinn æ oftar spurður hvort hægt væri að fá svona plakat með t.d. nöfnum fjölskyldunnar. Þá kviknaði áhuginn á því að þróa þetta lengra og gera aðgengilegt fyrir fleiri. Árið 2018 fínpússaði hann reikniritið og það er enn grunnurinn að baki Orðalist í dag.
Svo gerðist ekkert. Næstu árin tóku við önnur verkefni en hugmyndin var þó alltaf einhversstaðar á bak við eyrað. Það var svo ekki fyrr en árið 2024 sem Aðalsteinn, sem er alinn upp í Sviss og var að gegna þar herþjónustu, tók ákvörðun á rólegri næturvakt, að dusta rykið af hugmyndinni, láta vaða og koma henni í loftið.
Ári síðar gekk yngri bróðir hans, Sölvi, til liðs við hann. Síðan þá hafa þeir byggt Orðalist upp saman, allt frá hugbúnaði og hönnun yfir í prentun, vefsíðu og markaðsefni. Vefverslunin fór svo loks í loftið í ársbyrjun 2026.
Saman mynda þeir lítið en kröftugt teymi með skýrt markmið: að sem flest heimili á Íslandi eigi sitt eigið Orðalist-plakat, persónulegt verk sem fangar það sem skiptir fólk mestu máli.
Tilbúin að búa til þitt eigið?
Byrja strax